17 maí 2014Nú stendur yfir þing FIBA Europe - evrópska körfuknattleikssambandsins. Í dag var kjörin nýr forseti og ný stjórn. Turgay Demiral var kjörin forseti og fékk hann 40 atkvæði af 50. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ var kjörin í stjórn FIBA Europe en hann var einn 35 einstaklinga sem buðu sig fram í 23 sæti. Norðurlöndin munu eiga 4 fulltrúa í stjórn FIBA Europe þar sem fulltrúar þeirra norðurlanda sem buðu sig fram náðu allir kjöri. Ólafur Rafnsson var forseti FIBA Europe þegar hann lést 19.júní síðastliðinn og í gær föstudag samþykkti þingið að Ólafur yrði gerður að heiðursfélaga FIBA Europe. Af því tilefni er Gerður Guðjónsdóttir ekkja Ólafs og börn þeirra stödd á þinginu og munu þau taka við heiðursnafnbót Ólafs í sérstöku hófi í kvöld.