9 maí 2014
Njarðvík er bikarmeistari í unglingaflokki karla en liðið lék úrslitaleik gegn Stjörnunni í Grindavík í gær. Lokatölur leiksins urðu [v+]http://www.kki.is/widgets_game.asp?league_id=undefined&season_id=84731&game_id=2882835#mbt:6-400$t&0=0 [v-]87:65[slod-] en Njarðvík leiddi í hálfleik með 14 stigum. Elvar Már Friðriksson kjörinn maður leiksins enda með fallega þrennu, 24 stig, 10 fráköst og 11 stoðsendingar. Þjálfari liðsins er Einar Árni Jóhannsson. Til hamingju Njarðvík.