6 maí 2014
Domino's stóð fyrir skemmtilegum leik á sölustöðum sínum í úrslitakeppnum Domino's deildana þar sem viðskiptavinir gátu smellt af sér mynd með Hildi Björgu og Ragnari í fullri stærð á auglýsingu. Domino's valdi sigurvegarana sem merktu sínar myndir #dominosdeildin á samfélagsmiðlunum Twitter og Instagram. Domino's fékk svo Ragnar til að mæta og afhenda sigurhöfunum verðlaun sín en þeir fengu allir pizzuveislur, áskriftir af Sportpökkum Stöðvar 2 og alvöru Spalding keppnis körfubolta líkt og notaður er í Domino's deildunum. Sigurvegararnir voru þau Glódís Helgadóttir, Ómar Ingi Sverrisson og Sigurður Hannesson.