5 maí 2014
Ívar Ásgrímsson og Margrét Sturlaugsdóttir, þjálfarar A-landsliðs kvenna, hafa valið 16 leikmenn til áframhaldandi æfinga en æft verður að nýju í byrjun júní. Þá verður endanlegt 12 manna lið valið. Um helgina æfðu 25 leikmenn en upprunalega voru 26 valdar í æfingahóp. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Eva Margrét Kristjánsdóttir Snæfelli og Íris Sverrisdóttir, Haukum, gáfu ekki kost á sér í liðið og inn í æfingahópinni komu Jóhanna Björk Sveinsdóttir, Haukum, og Guðlaug Björt Júlíusdóttir, Njarðvík. Úr upprunalega æfingahópnum lá fyrir að tveir leikmenn gætu ekki tekið þátt í leikjum A-landsliðsins en þær Sara Rún Hinriksdóttir og Sandra Lind Þrastardóttir, báðar frá Keflavík, munu taka þátt í keppni U18-ára landsliðsins í sumar sem keppir á sama tíma og A-landsliðið. 16 manna æfingahópurinn eftir helgina er skipaður eftirtöldum leikmönnum: (landsleikir fyrir aftan) Bryndís Guðmundsdóttir · Keflavík 24 leikir Guðbjörg Sverrisdóttir · Valur 0 Gunnhildur Gunnarsdóttir · Haukar 8 Helena Sverrisdóttir · DVTK Miskolc 46 Helga Hjördís Björgvinsdóttir · Snæfell 0 Hildur Björg Kjartansdóttir · Snæfell 4 Hildur Sigurðardóttir · Snæfell 74 Ingibjörg Jakobsdóttir · Grindavík 12 Jóhanna Björk Sveinsdóttir · Haukar 2 Kristrún Sigurjónsdóttir · Valur 29 Margrét Rósa Hálfdanardóttir · Haukar 0 María Ben Erlingsdóttir · Grindavík 38 Marín Laufey Davíðsdóttir · Hamar 0 Pálína Gunnlaugsdóttir · Grindavík 23 Ragna Margrét Brynjarsdóttir · Valur 17 Sigrún Sjöfn Ámundardóttir · KR 24