30 apr. 2014Búið er að velja og boða 26 leikmenn til fyrstu æfinga fyrir landslið kvenna en æfingarnar fara fram næstu helgi 2.-4. maí. Verkefni sumarsins verða tveir æfingaleikir gegn landslið Danmerkur hér heima 9. og 10. júlí og svo Evrópukeppni kvenna í C-deild í Austurríki 14.-19. júlí. Æft verður föstudag og tvisvar á laugardaginn á Ásvöllum og svo á sunnudag í Smáranum. Ívar Ásgrímsson þjálfari hefur fengið til liðs við sig Margréti Sturlaugsdóttur sem aðstoðarþjálfara en Margrét er reyndur þjálfari yngri landsliða KKÍ og fyrrum landsliðsleikmaður Íslands. Eftirfarandi leikmenn mæta til leiks um helgina og eru í æfingahópnum: Snæfell Hildur Björg Kjartansdóttir Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir Hildur Sigurðardóttir Helga Hjördís Björgvinsdóttir Eva Margrét Kristjánsdóttir Haukar Gunnhildur Gunnarsdóttir Margrét Rósa Hálfdanardóttir Auður Íris Ólafsdóttir Íris Sverrisdóttir Lovísa Björt Henningsdóttir Keflavík Bryndís Guðmundsdóttir Sara Rún Hinriksdóttir Sandra Lind Þrastardóttir Njarðvík Salbjörg Ragna Sævarsdóttir Valur Guðbjörg Sverrisdóttir Hallveig Jónsdóttir Ragna Margrét Brynjarsdóttir Kristrún Sigurjónsdóttir KR Bergþóra Holton Tómasdóttir Sigrún Sjöfn Ámundardóttir Hamar Fanney Lind Guðmundsdóttir Marín Laufey Davíðsdóttir Grindavík Pálína Gunnlaugsdóttir Ingibjörg Jakobsdóttir María Ben Erlingsdóttir DVTK Miskolc Helena Sverrisdóttir