28 apr. 2014Stórglæsleg úrslit yngri flokka voru haldin um helgina í Smáranum, Kópavogi, þar sem níu úrslitaleikir voru leiknir og íslandsmeistarar krýndir. Leikið var í 9. flokki og 10. flokki drengja og stúlkna, í 11. flokki drengja, Stúlkna- og Drengjaflokki og Unglingaflokki karla og kvenna. Breiðablik sá um framkvæmd mótsins sem var glæsileg og voru allir leikir helgarinnar sýndir beint á netinu. Frábær tilfþrif sáust á parketinu og ljóst að margir frábærir leikmenn eru að koma upp úr yngriflokka starfi félaganna. Karfan.is var að svæðinu alla helgina og tók myndir og var með umfjöllun um alla leiki og eiga hrós skilið fyrir. Allar myndir eru fengnar að láni frá þeim. Eftirfarandi lið urðu íslandsmeistarar í sínum flokki: 9. flokkur stúlkna · Keflavík
[v+]http://www.karfan.is/image/1814 [v-]Myndasafn karfan.is[slod-] 9. flokkur drengja · ÍR
[v+]http://www.karfan.is/image/1818 [v-]Myndasafn karfan.is[slod-] 10. flokkur stúlkna · Keflavík
[v+]http://www.karfan.is/image/1819 [v-]Myndasafn karfan.is[slod-] 10. flokkur drengja · Njarðvík
[v+]http://www.karfan.is/image/1815 [v-]Myndasafn karfan.is[slod-] 11. flokkur drengja · Grindavík/Þór Þ.
[v+]http://www.karfan.is/image/1820 [v-]Myndasafn karfan.is[slod-] Stúlknaflokkur · Keflavík
[v+]http://www.karfan.is/image/1816 [v-]Myndasafn karfan.is[slod-] Drengjaflokkur · Haukar
[v+]http://www.karfan.is/image/1817 [v-]Myndasafn karfan.is[slod-] Unglingaflokkur kvenna · Keflavík
[v+]http://www.karfan.is/image/1821 [v-]Myndasafn karfan.is[slod-] Unglingaflokkur karla · Keflavík
[v+]http://www.karfan.is/image/1822 [v-]Myndasafn karfan.is[slod-] KKÍ óskar öllum félögum, leikmönnum og þjálfurum til hamingju með veturinn.