15 apr. 2014Um helgina fór fram lokamótið til íslandsmeistara í A-riðli 7. flokks stúlkna en leikið var í TM höllinni í Keflavík. Eftir leiki laugardag og sunnudag var komið að leik Njarðvíkur og Keflavíkur en bæði lið voru taplaus og því um hreinann úrslitaleik um íslandsmeistaratitilinn að ræða. Leikar fóru þannig að Njarðvík vann eftir jafnan leik 29:35 og eru því Íslandsmeistarar í 7. flokki stúlkna 2014. Þjálfari liðsins er Agnar Mar Gunnarsson. Til hamingju Njarðvík.