
4 apr. 2014Höttur og Fjölnir eigast við í kvöld kl. 18.30 á Egilsstöðum í leik tvö í úrslitaeinvíginu um laust sæti í efstu deild að ári. Fjölnir vann fyrsta leik liðanna en tvo sigra þarf til að vinna einvígið. Það verður því rífandi spenna í leiknum í kvöld og má lofa frábæri skemmtun. Leikurinn verður í beinni tölfræðilýsingu á kki.is sem og í sjónvarpi Fjölnis - fjolnir.is/tv.


