2 apr. 2014
Körfuknattleikssamband Íslands hefur ráðið Ívar Ásgrímsson sem þjálfara A-landsliðs kvenna fyrir verkefni sumarsins. Ívar er núverandi þjálfari karlaliðs Hauka og hefur þjálfað liðið undanfarin ár með góðum árangri. Ívar lék á árum áður með Haukum, Snæfell, ÍA, Breiðablik og ÍS og varð Íslandsmeistari með Haukum 1988. Ívar hefur áður þjálfað A-landsliðlið kvenna en hann stjórnaði liðinu frá 2004-2005. Aðstoðarþjálfari Ívars verður Margrét Sturlaugsdóttir sem hefur þjálfað fjölmörg yngri landslið Íslands og séð um úrvalsbúðir stúlkna á undanförnum árum. Verkefni sumarsins er Evrópukeppni FIBA Europe þar sem Ísland keppir í C-deild en áður að því móti kemur verða æfingaleikir hér heima gegn danska landsliðinu 9. og 10. júlí.