18 mar. 2014
Í dag kl. 12.15 verður blaðamannafundur í íþróttamiðstöðinni í Laugardal þar sem veitt verða verðlaun fyrir þá leikmenn og þjálfara sem hafa skarað fram úr í seinni hluta Domino's deildar karla á þessu tímabili. Tilkynnt verður um fimm manna úrvalslið sem valnefnd hefur kosið auk þess sem besti leikmaðurinn, besti þjálfarinn og Dugnaðarforkurinn fá sín verðlaun. Einnig verður farið yfir komandi úrslitakeppni karla og verða þjálfarar allra liða og leikmenn frá liðunum sem verða í „Áttunni" eða 8-liða úrslitunum í ár á staðnum og sitja fyrir svörum. Úrslitakeppni karla hefst á fimmtudag og föstudag Eftirfarandi viðureignir hefjast á fimmtudag. KR-Snæfell Grindavík-Þór Þ. (Sýndur beint á Stöð 2 Sport) Eftirfarandi viðureignir hefjast á föstudag. Keflavík-Stjarnan Njarðvík-Haukar