18 mar. 2014Ákveðið hefur verið að hið árlega vormót Molduxa fyrir 40 ára og eldri, verði haldið laugardaginn 5 apríl næstkomandi í íþróttahúsinu á Sauðárkróki (Síkinu). Körfuknattleiksáhugamenn eru beðnir að taka frá þessa helgi og hvattir til að mæta með góða skapið og keppnisandann í lagi. Allar upplýsingar og skráningar eru hjá Alla Munda í síma 453-6687 og 865-0819 og á netfanginu [p+]allimunda@internet.is[p-]allimunda@internet.is[slod-] sem og á vefsíðu Molduxa, [v+]http://www.molduxar.is [v-]www.molduxar.is [slod-].