11 feb. 2014Í kvöld mun Sigmundur Már Herbertsson dæma í Evrópukeppni FIBA Europe, [v+]http://www.fibaeurope.com/eurochallenge/ [v-]Eurochallenge[slod-], í Danmörku leik Bakken Bears gegn Ural Ekaterinburg. Leikurinn fer fram í Risskov og hefst kl. 18.15. Hægt verður að fylgjast með beinni tölfræðilýsingu á vef FIBA Europe. Sigmundur Már er eini virki FIBA dómari okkar íslendinga og hefur dæmt þó nokkuð fyrir áramót sem og síðastliðin ár fyrir FIBA Europe og meðal annars leik í sömu keppni í öðrum heimaleik Bakken Bears í Danmörku. KKÍ óskar Sigmundi góðs gengis í kvöld.