10 feb. 2014Peter Öqvist hefur tilkynnt KKÍ að hann muni ekki halda áfram að stýra A-landsliði karla. Stjórn KKÍ vildi hafa hann áfram í starfi landsliðsþjálfara en vegna persónulegra ástæðna þurfti hann að gefa verkefnið frá sér. Afreksnefnd og stjórn sambandsins fara í það að finna nýjan þjálfara fyrir A-landslið karla og mun sú vinna vonandi ekki taka of langan tíma. KKÍ þakkar Peter fyrir gott starf sem hefur eflt íslenskan körfubolta og óskar honum velfarnaðar í hans störfum í framtíðinni.