31 jan. 2014FIBA Europe hefur gefið út stykleikaröðun liða sem verða dregin í riðla á mánudaginn kemur fyrir EuroBasket 2015. Á sama tíma verður einnig dregið í riðla fyrir HM sem verður haldið á Spáni í haust. Ísland er í 22. sæti af 29. hjá þeim liðum sem eru gjaldgeng í undankeppnina. 16 sæti eru í boði á EuroBasket 2015 sem fram fer í Úkraínu. Þá á eftir að tilkynna einnig um úthlutun á „Aukasætum" eða "Wild-Card" liðum sem einnig verður tilkynnt á mánudag. Þá gætu allt að þrjár evrópuþjóðir farið beint inn á HM og þar með EuroBasket 2015. Þá kemur í ljós í framhaldinu stærð riðla og fjöldi þeirra fyrir seinni hluta undankeppninnar. Að auki hafa Króatía, Frakkland, Serbía, Slóvenía, Spánn, Úkraína og Eistland tryggt sér sæti á EuroBasket 2015 og leika því ekki í undankeppninni í sumar. Það verður því mjög spennandi mánudagur 3. febrúar en KKÍ mun fylgjast með gangi mála og færa fréttir af niðurstöðu dráttsins, bæði fyrir undankeppni EuroBasket og HM á Spáni í haust. Meðal liða sem gætu heimsótt okkur í Laugardalshöllina eru Grikkland, Rússland, Þýskaland, Ítalía, Finnland, Tyrkland, Bosnía, Bretland, Finnland og Pólland sem dæmi. Mjög líklegt verður þó að telja að þrjár af þessum þjóðum fái sæti á EuroBasket. Styrkleikaniðurröðunin er eftirfarandi en hún er fundin út eftir gengi liðanna á síðasta EuroBasket og 1. umferð undankeppni síðasta sumars: 1. Ítalía 2. Finnland 3. Lettland 4. Grikkland 5. Belgía 6. Bosnía 7. Þýskaland 8. Svartafjallaland 9. Tékkland 10. Bretland 11. Makedónía 12. Ísrael 13. Rússland 14. Georgía 15. Tyrkland 16. Svíþjóð 17. Pólland ------- Fyrstu 17 voru á EuroBasket --------- 18. Búlgaría (Úrslit í 1. umferð) 19. Hvíta-Rússland (Undanúrslit í 1. umferð) 20. Sviss (undanúrslit í 1. umferð) 21. Austurríki 22. ÍSLAND 23. Portúgal 24. Slóvakía 25. Danmörk 26. Ungverjaland 27. Rúmenía 28. Holland 29. Lúxemborg