28 jan. 2014Nú hafa leikdagar í undanúrslitum karla og kvenna verið ákveðnir og mun RÚV Íþróttir sýna beint tvo leiki af fjórum. Hjá konum eigast við laugardaginn 1. febrúar kl. 15.00 Snæfell og KR í Stykkishólmi. Á sunnudeginum 2. febrúar kl. 19.15 mætast svo Keflavík og Haukar en sá leikur verður sýndur beint á RÚV Íþróttir. Báðir leikir karla í undanúrslitunum fara fram mánudaginn 3. febrúar. Tindstóll tekur á móti ÍR í Síkinu á Sauðárkróki en Tindastólsmenn sýna sinn leik væntanlega beint á netinu líkt og alla þeirra heimaleiki. RÚV Íþróttir sýnir svo leik Grindavíkur og Þórs Þorlákshafnar sama kvöld frá Röstinni í Grindavík. Báðir leikirnir hefjast kl. 19.15. Úrslit Poweradebikarsins Sigurvegarar leikjanna mætast svo í beinni á RÚV laugardaginn 22. febrúar í Laugardalshöllnni þar sem leikið verður til úrslita um titilinn hjá konum og körlum.