28 jan. 2014Samkvæmt reglugerð um félagaskipti lokar félagaskiptaglugginn í annað sinn og í síðasta sinn á þessu tímabilli á miðnætti föstudaginn þann 31. janúar. Það þýðir að engir leikmenn, íslenskir né erlendir, geta fengið félagaskipti né leikheimildir útgefnar eftir þann tíma. Það sama gildir um venslasamninga þar sem þeir hlúta reglum um félagaskipti. Innlend félagsskipti Skila þarf félagaskiptablöðum útfylltum með undirskrift leikmanns og forsvarsmanni þess félags sem gengið er úr á skrifstofu KKÍ eða senda í tölvupósti eða með faxi. Greiða þarf fyrir með millifærslu eða fá undirskrift nýja félagsins ef um skuldfærslu er að ræða. Í þeim tilfellum þar sem leikmaður er eldri en 20 ára þarf félaga sem gengið er í einnig að vera skuldlaust við KKÍ fyrir lok 31. janúar. Leikheimildir erlendra leikmanna Skila þarf inn öllum gögnum sem KKÍ fer fram á auk þess að beiðni um LOC, sé þess er þörf, skal vera kominn í gang ásamt því að félag þarf að vera skuldlaust við KKÍ. Staðfesting frá UTL og LOC má þó berast eftir 31. janúar og hlýtur leikmaður þá leikheimild.