20 jan. 2014Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst í febrúar. Boðið verður upp á nám á 1. 2. og 3. stigi ÍSÍ sem er almmennur hluti þekkingar íþróttaþjálfara og gildir fyrir allar íþróttagreinar. Vakin skal sérstök athygli á því að í fyrsta sinn er nú nám á 3. stigi í boði sem er sjálfstætt framhald náms á 1. og 2. stigi. 3. stig ÍSÍ er síðasta stigið á framhaldsskólastigi. Alls fimm kennarar koma að kennslunni á þessu stigi með sérþekkingu á því efni sem þeir kenna s.s. í íþróttasálfræði, íþróttameiðslum, íþróttastjórnun og fleira. KKÍ hvetur þjálfara innan sinnar aðildarfélaga til þátttöku í náminu en mikill kostur er að hafa menntaða þjálfara í starfinu hjá sem flestum félögum. Frekari upplýsingar fást á vefnum isi.is og hjá Viðari Sigurjónssyni á netfanginu [p+]kki@kki.is[p-]vidar@isi.is[slod-] og/eða í síma 460-1467.