17 jan. 2014Eins og alltaf þegar um Stjörnuleiki er að ræða þá verður 3-stiga keppnin á sínum stað. Hjá konum var það Crystal Smith, fyrrum leikmaður Grindavíkur sem sigraði í fyrra, en leikurinn fór fram í Keflavík á síðasta ári. Eftirtaldir leikmenn munur berjast um titilinn Þriggja stiga drottningin 2014 að Ásvöllum í Hafnarfirði. Chynna Unique Brown · Snæfell Di'Amber Johnson · Hamar Íris Sverrisdóttir · Haukar Sara Dögg Margeirsdóttir · Njarðvík Bergþóra Holton Tómasdóttir · KR Fanney Lind Guðmundsdóttir · Hamar Lele Hardy · Haukar Lovísa Falsdóttir · Keflavík Lele Hardy er sú eina sem tók þátt í fyrra og spurning hvernig henni muni ganga að þessu sinni laugardaginn 25. janúar.