16 jan. 2014Eins og alltaf þegar um Stjörnuleiki er að ræða þá verður 3-stiga keppnin á sínum stað. Magnús Þór Gunnarsson, Keflavík, bar sigur úr býtum í keppninni á síðasta ári en á meðal keppenda í ár eru nokkrir sem hafa látið rigna niður þristum á fyrri hluta keppnistímabilsins. Eftirtaldir leikmenn munur berjast um titilinn í ár: Martin Hermannsson · KR Guðmundur Jónsson · Keflavík Elvar Már Friðriksson · Njarðvík Brynjar Þór Björnsson · KR Jón Ólafur Jónsson · Snæfell Nemanja Sovic · Þór Þ. Marvin Valdimarsson · Stjarnan Kári Jónsson · Haukar Jón Ólafur og Brynjar Þór tóku einnig þátt í fyrra og mæta því reynslunni ríkari í ár en þess má geta að Jón Ólafur sigraði keppnina árið 2012.