10 jan. 2014KKÍ mun standa fyrir dómaranámskeiði sem hefst um miðjan janúar og mun námskeiðið verða kennt á veraldravefnum með fjarkennslu og lýkur henni með bóklegu prófi á netinu. Verkleg kennsla fer svo fram í lok febrúar á fjölliðamóti yngri flokka og verður fjölmennt á þá staði þar sem auðveldast er fyrir flesta að mæta eða jafnvel verklega prófið tekið á tveim mismunandi stöðum eins og hentar. Skráning er á netfanginu [p+]kki@kki.is[p-]kki@kki.is[slod-] og lýkur skráningu föstudaginn 10. janúar. Þátttökugjaldið er 4.000 kr. og sem greiða verður fyrir upphaf námskeiðisins. Um er að ræða nýtt fyrirkomulag dómaranámskeiða á vegum KKÍ en byrjað var í fyrravetur að kenna á netinu og tókst það gríðarlega vel. Tilgangurinn er að ná til fleiri þátttakenda og taka námskeiðið á lengri tíma en verið hefur hingað til. KKÍ vonast til að með þessu nýja fyrirkomulagi gefi fleiri sér tíma til að sækja námskeið og taka þannig þátt í eflingu körfuknattleiksíþróttarinnar út um allt land. Óhætt er að segja að þetta fyrirkomulag hefur slegið í gegn og þátttakendur ráða námshögun og framvindu innan vissra marka sem gerir þátttöku mun auðveldari.