7 jan. 2014Verðlaun voru veitt í dag fyrir bestu frammistöður í Domino's deildum karla og kvenna fyrir fyrri hluta keppnistímabilsins. Að venju voru fimm manna úrvalslið deildanna tilkynnt og verðlaun veitt fyrir besta þjálfarann og dugnaðarforkinn í báðum deildum. Besti dómari Domino’s deilda karla og kvenna í fyrri hlutanum var kosinn Sigmundur Már Herbertsson. Eftirfarandi leikmenn og þjálfarar fengu verðlaun:
Úrvalslið Domino’s deildar kvenna í fyrri hlutanum 2013-2014 Hildur Sigurðardóttir · Snæfell Sara Rún Hinriksdóttir · Keflavík Lele Hardy · Haukar Bryndís Guðmundsdóttir · Keflavík Hildur Björg Kjartansdóttir · Snæfell Dugnaðarforkurinn: Marín Laufey Davíðsdóttir · Hamar Besti þjálfarinn: Andy Johnston · Keflavík Besti leikmaður Domino's deildar kvenna: Lele Hardy · Haukar
Úrvalslið Domino’s deildar karla í fyrri hlutanum 2013-2014 Martin Hermannsson · KR Elvar Már Friðriksson · Njarðvík Pavel Ermolinskij · KR Michael Craion · Keflavík Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Þór Þorlákshöfn Dugnaðarforkurinn: Darri Hilmarsson · KR Besti þjálfarinn: Finnur Freyr Stefánsson · KR Besti leikmaður Domino’s deildar karla: Elvar Már Friðriksson · Njarðvík