17 des. 2013
Domino's deildir karla og kvenna eru komnar í frí fram yfir áramótin en deildirnar hefjast að nýju 4.-5. janúar hjá konum og 9.-10. janúar hjá körlum. Þriðjudaginn 7. janúar verða úrvalslið fyrri umferðar hjá körlum og konum tilkynnt og verðlaun afhend í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Valin verða fimm manna úrvalslið ásamt besta þjálfaranum, dugnaðarforkinum og svo verður besti leikmaðurinn tilkynntur. Hægt er að skoða alla tölfræði leikmanna í fyrri hluta deildanna á [v+]http://www.kki.is/widgets_home.asp [v-]kki.is[slod-] með því að velja deild og smella á „Tölfræði liða" eða „Tölfræði leikmanna".