12 des. 2013U18 ára lið karla og kvenna munu taka þátt í Evrópukeppni yngri landsliða næsta sumar. Bæði lið leika í B-deild Evrópukeppninnar sem er gríðarlega sterk og spennandi verkefni framundan hjá okkar efnulegustu leikmönnum. Að auki munu U15, U16 og U18 ára yngri landslið KKÍ taka þátt í hefðbundnum verkefnum í sumar fyrir hönd lands og þjóðar en lið drengja og stúlkna taka þátt í U15 ára móti í Kaupmannahöfn, Copenhagen Invitational, og U16 og U18 fara á norðurlandamótið í Solna í Svíþjóð. Eftirfarandi dagsettningar eru á verkefnum 2014 Maí: U16 og U18 ára drengja og stúlkna, Solna, Svíþjóð. Norðurlandamót yngri landsliða 28. maí – 1. júní. Júní: U15 ára drengja og stúlkna, Kaupmannahöfn. Copenhagen Invitational 19. – 22. júní. Júlí EM U18 kvenna, 17. – 27. júlí, Rúmenía. Riðill: Sviss, Ísrael, England, Danmörk og Ísland. EM U18 karlar, 24. júlí – 3. ágúst, Úkraína Riðill: Eistland, Austurríki, Ísrael, Þýskaland, Georgía og Ísland. Á morgun verða allir æfingahópar fyrir öll landsliðin og þjálfarateymi þeirra kynnt en æft verður í kringum hátíðarnar framundan.