11 des. 2013
Líkt og undanfarin ár gefst körfuboltaaðdáendum kostur á að velja byrjunarliðin í Stjörnuleikjum karla og kvenna í ár. Þeir 5 leikmenn sem fá flest atkvæði í hvert lið hefja leikinn en Stjörnuleikshátíð KKÍ 2014 fer fram að Ásvöllum í Schenkerhöll Hauka laugardaginn 25. janúar. Liðunum var skipt upp á víxl eftir stöðu þeirra í deildinni eða eftir umferð 27. nóv (12 leikir) hjá konum og frá 29. nóv (8 leikir) hjá körlum. Eftirfarandi lið leika því saman: Konur: Icelandair liðið: Keflavík, Haukar, Grindavík og KR. Dominos liðið: Snæfell, Hamar, Valur og Njarðvík Karlar: Icelandair liðið: Keflavík, Njarðvík, Stjarnan, Snæfell, Skallagrímur og KFÍ. Dominos liðið: KR, Grindavík, Þór Þ., Haukar, ÍR og Valur. Þjálfarar liðanna verða efstu tveir í hvorri deild. Andy Johnston, Keflavík er með bæði karla og kvennalið Icelandair-liðanna og Finnur Freyr Stefánsson, KR, er með Domino's lið karla og Ingi Þór Steinþórsson með Domino's lið kvenna en þjálfararnir velja svo aðra leikmenn í hvert lið. Nánari dagskrá verður auglýst síðar en það verður fjör og ýmislegt skemmtilegt í boði að vanda. Netkosningin í ár er í boði [v+]http://einfalt.is/ [v-]www.einfalt.is[slod-] líkt og á síðasta ári en einfalt.is sér um utanumhald og vefsíðu kosningarinnar. Athugið að hver og ein tölva getur kosið einu sinni í netkosningunni og einungis er hægt að velja 2 erlenda leikmenn í hvert byrjunarlið. Kosning í Stjörnuleik karla og kenna [v+]http://kosningkki.einfalt.is/skraning/kvk [v-]-Smelltu hér til að kjósa í kvennaliðin-[slod-] [v+]http://kosningkki.einfalt.is/skraning/ [v-]-Smelltu hér til að kjósa í karlaliðin-[slod-]