19 nóv. 2013Hið árlega Stjörnustríð körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar verður haldið í Íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ dagana 23. og 24. nóvember nk. Mótið er fyrir stelpur og stráka fædd 2003 og 2004. Skráning er þegar hafin hjá Snorra yfirþjálfara Stjörnunnar í síma: 618-4545 eða á netfanginu: snorriorn@gmail.com. Þátttökugjald er einungis 1.000 kr. pr. iðkanda. Leikreglur: - Stig eru talin, en hámarks munur sem skráður verður er 20 stig. - Spilað er 5-á-5. - Leiktími er 2x12 mín. - Hvert lið mun leika 4 leiki. - Spilað verður til úrslita.