21 okt. 2013KKÍ auglýsir eftir þjálfurum á eftirfarandi yngri landslið sambandsins fyrir verkefni ársins 2014: U15 ára stúlkna – árgangur 1999 U16 ára stúlkna – árgangur 1998 U16 ára drengja – árgangur 1998 U18 ára stúlkna – árgangur 1996 Ef ákvörðun verður tekin á seinni stigum að senda U20 ára landslið kvenna og karla í Evrópukeppni verður auglýst sérstaklega eftir umsóknum fyrir þau lið þegar það liggur fyrir. Jafnframt auglýsir KKÍ eftir áhugasömum aðilum sem vilja koma að starfinu sem aðstoðarþjálfarar á yngri landsliðin. Verkefni yngri landsliðanna vorið/sumarið 2014: - Copenhagen Invitational (U-15 strákar og stelpur) - Norðurlandamót (U-16 og U-18 strákar og stelpur) Evrópukeppni yngri landsliða 2014: - U16, U18 og U20 ára landslið karla og kvenna. - Stefna KKÍ er ávallt að fara með öll lið í Evrópukeppni en ákvörðun um hvaða lið verða send verður tekin fyrir um miðjan nóvember. Þátttaka í Evrópukeppni er háð fjárhagsstöðu sambandsins á hverjum tíma. Ráðningartímabilið er frá 15. nóvember 2013 fram yfir þau verkefni sem farið verður í sumarið 2014. Upplýsingar fyrir þjálfara til að hafa í huga: · Skipulagning á verkefninu er í samráði við afreksnefnd KKÍ og starfsmenn KKÍ. · Afreksnefnd hefur á undanförnu ári unnið að því að endurskipuleggja starfsemi á afreks- og landsliðsstarfi KKÍ. Verið er að leggja lokahönd á handbók fyrir alla sem að starfinu koma, sem unnið verður eftir með þeim þjálfurum sem verða ráðnir nú til starfa. · Þjálfari skilar inn ítarlegri skýrslu um verkefnið að því loknu. · Þjálfari situr opinn fund með fulltrúum KKÍ að loknum verkefnum árið 2014 þar sem öllum áhugasömum gefst kostur á að mæta. Ferilskrá skal fylgja með umsókninni ásamt eftirfarandi upplýsingum: - Almennur bakgrunnur, menntun, störf ofl. - Bakgrunnur í þjálfun ásamt menntun og reynslu í þjálfun. - Ef umsækjendur vilja sækja um einhvern tiltekinn árgang eða kyn skal fylgja með beiðni um hvaða lið þú vilt þjálfa og hvers vegna það lið. Senda skal umsóknir inn í síðasta lagi þriðjudaginn 29. október á netfangið [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-]. Fyllsta trúnaðar verður gætt varðandi umsóknir um starf hjá KKÍ.