16 okt. 2013
Búið er að draga í fyrstu umferð Poweradebikarsins 2013-2014 en 33 lið eru skráð til leiks. Það þýðir að einn leikur verður í forkeppni 32-liða úrslitanna og voru það lið Hauka-b og Stjörnunnar-b sem drógust saman en aðeins B-lið og lið í 2. deild voru í pottinum í þeim drætti, áður en Domino's deildar liðin og 1. deildar liðin bættust við í skálina góðu. Eftirtöld lið voru dregin saman í 32-liða úrslitunum. Leikið verður helgina 1.-3. nóvember Njarðvík · KR Laugdælir · Snæfell KR-b · Keflavík KFÍ · Haukar Afturelding · FSu ÍG · Vængir Júpiters Höttur · Stjarnan KV · Tindastóll Reynir S. · Hamar Sindri · Þór. Þ . Keflavík-b · Álftanes ÍA · Fjölnir Breiðablik · ÍR Sigurvegari úr leik Haukar-b/Stjarnan-b · Skallagrímur Valur · Grindavík Leiknir · Þór Ak. Nýr samningur við Powerade Á sama tíma og dregið var skrifuð undir nýjan samning milli Powerade og KKÍ um áframhaldandi samstarf til næstu 3 ára. Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ og Gunnar Lár Gunnarsson, markaðstjóri Powerade, sem skrifuðu undir samninginn áður en þeir drógu í fyrstu umferðinna.