9 okt. 2013Í dag fór fram kynningarfundur fyrir Domino's deildir karla og kvenna. Á fundinum skrifuðu Hannes S. Jónsson formaður KKÍ, Ari Edwald forstjóri 365 og Birgir Örn Birgisson framkvæmdasjóri Domino´s undir samning um stóraukna umfjöllum um Domino´s deildirnar á Stöð 2 Sport. Það verð verða að minnsta kosti 10 beinar útsendingar úr deildarkeppni karla og strax í fyrstu umferð á fimmtudaginn verður bein útsending frá leik Grindavíkur og KR á Stöð 2 Sport. Fimm aðrir leikir verða fyrir áramót og verða þeir allir á mánudagskvöldum og þá verður enginn annar leikur í Domino´s deildunum. Beinum útsendingum frá úrslitakeppni karla verður fjölgað. Í fyrsta sinn mun Stöð 2 Sport sýna frá úrslitakeppni Domino´s deildar kvenna. Aukin þáttargerð um íslenskan körfubolta og sem dæmi um það eru nýju þættirnir „Liðið mitt“ í umsjón Sverris Bergmans um liðin 12 í Domino´s deild karla.