12 sep. 2013Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi. Umsóknarfrestur er til 2. október og er upphæð hvers styrkjar 100.000 krónur. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má á vef [v+]http://isi.is/library/Skrar/Efnisveita/Eydublod/umsokn_um_thjalfarastyrk.pdf[v-]ÍSÍ[slod-].