2 sep. 2013Föstudaginn 13. september verður opinn fræðslufundur um starf íþróttadómarans í Laugardalshöll. Fyrirlesarar eru ekki minni menn en NBA-dómarinn Joey Crawford og Zsolt Hartyani, ungverskur eftirlitsmaður sem kemur beint frá EuroBasket í Slóveníu. Joey er að hefja sitt 36. tímabil í NBA en hann er einn umtalaðasti og reyndasti dómarinn í NBA-deildinni. Hann hefur dæmt 2500 leiki í deildinni, 300 í úrslitakeppni og 50 í lokaúrslitum, síðast leiki í úrslitaeinvígi Miami og San Antonio í vor. Zsolt Hartyani er frá Ungverjalandi. Hann hefur dæmt yfir 2000 leiki, FIBA dómari í 10 ár og eftirlitsmaður í 13 ár eftir það og er enn að og mun koma beint af EuroBasket í Slóveníu. Situr í evrópsku tækninefndinni og hefur samið sumar breytingar af þeim leikreglum sem gilda í dag. Dagskrá: · Lífið í NBA · Bakvið tjöldin á Eurobasket 2013 · Gagnvirk þjálfun dómara · Samskipti dómara og þjálfara/leikmanna · Pallborðsumræður Dags: Föstudaginn 13. september frá 13 til 16:30 í sal 1 í Laugardalshöll Þetta er eitthvað sem enginn íþróttadómari eða íþróttaáhugamaður má láta framhjá sér fara. Verð 3.900 kr. og skráning fer fram á [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-]. Skráningafrestur er til 10. september eða á meðan sætaframboð leyfir.