16 ágú. 2013Ísland lagði Rúmena að velli 77-71 í Laugardalshöll í skemmtilegum leik. Ísland var með frumkvæðið allan leikinn en gestirnir náðu að jafna í lok fyrri hálfleiks og í byrjun fjórða leikhluta. En íslensku strákarnir stóðust pressuna og svöruðu jafnóðum. Lokatölur leiksins 77-71 og Ísland með sinn annan sigur á Rúmenum í undankeppninni. Jakob Sigurðarson var stigahæstur hjá Íslandi með 23 stig og næstur honum var Haukur Helgi Pálsson með 14 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar. Jón Arnór setti 11 stig og nokkur mikilvæg stig á endasprettinum. Var þetta síðasti leikur Íslands í undankeppninni og lendir Ísland í öðru sæti á eftir Búlgaríu og Rúmenar verma botnsætið. Lokastaðan: Búlgaría 3/1 Ísland 2/2 Rúmenía 1/3 [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_KNce8jInH7Qj1EsyH5rjn2.gameID_9490-A-6-6.compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.season_2015.roundID_9486.teamID_.html[v-]Tölfræði leiksins[slod-] Búlgaría mætir Sviss í undanúrslitum og fara leikirnir fram í næstu viku.