7 ágú. 2013Ísland sigraði í rétt í þessu Rúmeníu í undankeppni EuroBasket 2015 í Constanta, Rúmeníu. Íslenska liðið var að leika sinn annan leik í heimsókn til Búlgaríu og Rúmeníu í sömu ferð en áður höfðu íslensku strákarnir tapað gegn Búlgaríu í fyrsta leik keppninnar. Íslenska liðið byrjaði feiki vel þó heimamenn skoruðu fyrstu körfu leiksins þá komu 16 íslensk stig í kjölfarið á fyrstu fimm mínútum leiksins og leiddi 25:10 eftir fyrsta leikhluta. Liðið lék eftir leikplani þjálfarans og gáfu rúmenska liðinu fá tækifæri í sókninni og stálu boltanum ítrekað eftir góða liðsvörn. Þó að rúmenska liðið minnkaði muninn í fimm stig á tímabili í leiknum átti íslenska liðið alltaf svör og náði forskoti sem þeir héldu út leikinn. Lokatölur 72:64 í síst of stórum sigri. Skemmtilegt atvik átti sér stað fyrir upphaf leiksins en Pavel Ermolinskij skartaði svörtum sokkum í upphitun sem dómarar og eftilitsmaður höfðu athugasemd við og fékk Pavel þá hvíta sokka hjá liðstjóra liðsins og starfsmanni KKÍ, Kristni Geir, og sagði Pavel í léttum tón eftir leikinn að þetta hefði verið lykilinn að sigri íslenska liðsins. Næsti leikur verður heimaleikur í Laugardalshöllinni gegn Búlgaríu þann 13. ágúst þar sem stefnan er sett á sigur. Miðasala er hafin á Miði.is Stigahæstir í íslenska liðinu í dag voru Haukur Helgi Pálson með 24 stig, Jakob Örn Sigurðarson 15 stig, Pavel Ermolinskij með 12 stig og 6 fráköst, Hlynur Bæringsson var með 7 stig, 10 fráköst og 8 stoðsendingar. [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_KNce8jInH7Qj1EsyH5rjn2.compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.season_2015.gameID_9490-A-3-3.html [v-]Sjá nánar á FIBA Europe (tölfræði, umfjöllun og viðtöl)[slod-].
Raggi Nat treður yfir hálft rúmenska liðið