21 júl. 2013
Þriðji og síðasti leikir A-landsliðs karla á 4-landa æfingamóti í Kína verður núna kl. 10.30 eða 18.30 að kínverskum tíma. Í dag er það Makedónía sem eru mótherjar okkar drengja. Makedónía hefur tapað báðum sínum leikjum hér á mótinu en í gær töpuðu þeir fyrir Kínverjum og í fyrrakvöld Svartfellingum. Okkar drengir unnu Svartfjallaland í gær. Staðan er því þannig núna á síðasta leikdegi mótsins að hart er barist. Kína er með tvo sigra og mæta Svarfellingum á eftir okkar leik, Ísland 1 sigur og 1 tap, Svartfjallaland 1 sigur og 1 tap og svo Makedónía með 2 töp. Drengirnir okkar eiga möguleika á því að enda í 2-4.sæti á mótinu. Verðlaunafé er fyrir tvö efstu sætin, 1. sæti um 15 milljónir og 2. sæti um 6 miiljónir. Makedónía endaði í 4.sæti á síðasta EuroBasket í Litháen og er að undirbúa sig fyrir EuroBasket í Slóveníu sem hefst í lok ágúst. Stefnt er að því að senda upplýsingar og myndir heim á [v+]https://www.facebook.com/kki.islands [v-]facebook-síðu KKÍ[slod-] á meðan leik stendur.