17 júl. 2013A-landslið karla er komið til Kína til að taka þátt í 4-landa móti sem hefst á föstudag. Jóhann Árni Ólafsson veikist nokkrum klukkustundum fyrir brottför frá Íslandi og þar sem langt ferðalag var framundan fór Jóhann ekki með hópnum og verður því ekki með liðinu á þessu æfingamóti. Eins og áður hefur komið fram meiddist Jón Arnór Stefánsson á síðasta föstudag og því er liðið hér í Kunshan skipað 10 leikmönnum en ekki 12 þar sem ekki er hægt að fá áritun til Kína með svon stuttum fyrirvara fyrir brottför. Hópurinn er því þannig skipaður sem nú er í Kunshan-Kína 4 Brynjar Þór Björnsson • KR 5 Haukur Helgi Pálsson • La Bruixa d'Or (áður Manresa) 6 Jakob Örn Sigurðarson • Sundsvall Dragons 8 Hlynur Bæringsson • Sundsvall Dragons 10 Martin Hermannsson • KR 11 Axel Kárason • Værlose 12 Ragnar Nathanaelsson • Hamar 13 Hörður Axel Vilhjálmsson • Free Agent 14 Logi Gunnarsson • Free Agent 15 Pavel Ermolinskij • Free Agent Peter Öqvist • Þjálfari Pétur Már Sigurðsson • Aðstoðarþjálfari Arnar Guðjónsson • Aðstoðarþjálfari Jóhannes Marteinsson • Sjúkraþjálfari Hannes S. Jónsson • Fararstjóri Friðrik I. Rúnarsson • Fararstjóri
Leiktímar liðsins: Föstudagur 19. júlí Ísland-Kína kl. 19:30 að staðartíma eða 11:30 að íslenskum tíma. Laugardagur 20. júlí Ísland-Svartfjallaland kl. 17:30 að staðartíma eða 9:30 að íslenskum tíma. Sunnudagur 21. júlí Ísland-Makedónía kl. 18:30 að staðartíma eða 10:30 að íslenskum tíma.