12 júl. 2013A-landslið karla er þessa dagana að undirbúa sig fyrir undankeppni Evrópukeppninnar sem hefst í byrjun ágúst en leikið er um eitt sæti á Eurobasket 2015 í Úkraínu. Ísland er í riðli með Rúmeníu og Búlgaríu. Framundan eru fimm æfingaleikir fram að Evrópukeppni. Æfingamót í Kína 16. – 22. júlí: Liðið heldur til Kína þriðjudaginn 16. júlí til að taka þátt í 4-landa móti en auk heimamanna og okkar verða lið Makedóníu og Svartfjallalands sem eru að undirbúa sig fyrir lokakeppni Evrópukeppninnar sem fram fer í Slóveníu í september. Ljóst er að um að alvöru æfingaleiki verður að ræða. Æfingaleikir við Dani 25. og 26. júlí: 25.07. Ásgarður 17:00 Ísland – Danmörk U22 ára lið þjóðanna 19:15 Ísland – Danmörk A-landslið þjóðanna 26.07. Keflavík 17:00 Ísland – Danmörk U22 ára lið þjóðanna 19:15 Ísland – Danmörk A-landslið þjóðanna Hópurinn sem heldur utan til Kína á þriðjudaginn er skipaður eftirtöldum aðilum: 4 Brynjar Þór Björnsson • KR 5 Haukur Helgi Pálsson • La Bruixa d'Or (áður Manresa) 6 Jakob Örn Sigurðarson • Sundsvall Dragons 7 Jóhann Árni Ólafsson • Grindavík 8 Hlynur Bæringsson • Sundsvall Dragons 10 Martin Hermannsson • KR 11 Axel Kárason • Værlose 12 Ragnar Nathanaelsson • Hamar 13 Hörður Axel Vilhjálmsson • Free Agent 14 Logi Gunnarsson • Free Agent 15 Pavel Ermolinskij • Free Agent Peter Ökvist • Þjálfari Pétur Már Sigurðsson • Aðstoðarþjálfari Arnar Guðjónsson • Aðstoðarþjálfari Jóhannes Marteinsson • Sjúkraþjálfari Hannes S. Jónsson • Fararstjóri Friðrik I. Rúnarsson • Fararstjóri Í morgun kom í ljós að Jón Arnór Stefánsson þarf að hvíla í 10 daga en hann á við smávægileg meiðsl að stríða. Hann verður klár í slaginn fyrir leikina gegn Dönum og Evrópuleikina. Því miður var ekki hægt að fá áritun til Kína fyrir leikmann í hans stað með svo stuttum fyrirvara svo það fara 11 leikmenn í þessa ferð. Darri Hilmarsson, Stefán Karel Torfason og Þorgrímur Kári Emilsson eru enn í æfingahópnum og munu vera með liðinu eftir að það kemur heim frá Kína.