10 júl. 2013A-landslið karla æfir þessa dagana stíft fyrir verkefnin framundan þar sem þátttaka í undanriðlum Evrópukeppninnar ber hæst. 21 leikmaður hóf æfingar 1.júlí. Síðan þá hafa Magnús Þór Gunnarsson, Elvar Már Friðriksson og Sveinbjörn Claessen dottið út úr hópnum. Að auki hafa Ægir Þór Steinarsson ( Meiðsli ) Justin Shouse ( Persónulegar ástæður ) Helgi Magnússon ( Vegna vinnu ) og Finnur Atli Magnússon ( Meiðsli ) dregið sig út úr hópnum. Það er möguleiki á að Finnur komi inn aftur á seinni stigum en hann verður ekki klár fyrir Kínaferðina eða leikina gegn Dönum á heimavelli 25. og 26. júlí. Hinn ungi og efnilegi miðherji ÍR, Þorgrímur Kári Emilsson hefur verið kallaður inn til æfinga. Hópurinn lítur þá svona út: Jakob Örn Sigurðarsson · Sundsvall Dragons Jón Arnór Stefánsson CAI Zaragoza Brynjar Þór Björnsson · KR Logi Gunnarsson · BC Angers 49ers Hörður Axel Vilhjálmsson · MBC Pavel Ermolinskij · Norrköping Dolphins Hlynur Bæringsson · Sundsvall Dragons Ragnar Nathanaelsson · Hamar Axel Kárason · Værlose Haukur Helgi Pálsson · La Bruixa d'Or (áður Manresa) Martin Hermannsson · KR Jóhann Árni Ólafsson · Grindavík Darri Hilmarsson · Þór Þorlákshöfn Stefán Karel Torfason · Snæfell Þorgrímur Kári Emilsson · ÍR Leikmannahópurinn fyrir Kínaferðina verður valinn í vikunni en flogið verður til Kína þriðjudaginn 16. júlí þar sem leikið verður gegn heimamönnum, Makedóníu og Svartfjallalandi.