25 jún. 2013Framundan í júlí eru nóg um að vera hjá A-landsliði karla í undirbúningi sínum fyrir Evrópuleikina í upphafi ágúst þegar við munum leika hér heima og úti gegn Búlgaríu og Rúmeníu. Kínaferð 16.-22. júlí Fyrsta verkefnið er æfingamót í Kína. Íslenska landsliðinu er boðið á sterkt mót 19.-22. júlí en þá munum við leika gegn feikisterkum landsliðum heimamanna Kína, Makedóníu og Svartfjallalands. Makedónía hafnaði í 4. sæti á síðastliðnu Evrópumóti í Litháen 2011 og Svartfjallaland tryggði sig inn taplausir á EM 2013 sem hefst í haust sl. sumar. Landslíð Kína eru núverandi Asíumeistarar en þeir buðu okkur síðast í heimsókn 2011 í undirbúningi sínum fyrir upphaf þess móts. Ísland-Danmörk 25.-26. júlí Í lok júlí eru fjórir æfingaleikir landsliða Íslands og Danmerkur, bæði hjá A-liðunum og U22-ára liðum karla, en bæði lið leika tvo leiki gegn hvort öðru. Leikið verður Garðabæ 25. júlí og í Toyota-höllinni í Keflvík 26. júlí. U22-ára æfingahópurinn: Æfingahópur U22-ára liðsins er skipaður eftirfarandi 17 leikmönnum: Arnþór Freyr Guðmundsson · Fjölnir Ágúst Orrason · UMFN Björgvin Hafþór Ríkharðsson · Fjölnir Elvar Már Friðriksson · UMFN Emil Karel Einarsson · Þór Þ. Haukur Óskarsson · Haukar Kristófer Acox · KR Maciej Baginski · UMFN Martin Hermannsson · KR Matthías Orri Sigurðarson · KR Ragnar Nathanaelsson · Hamar Snorri Hrafnkelsson · Keflavík Stefán Karel Torfason · Snæfell Sæmundur Valdimarsson · Stjarnan Tómas Heiðar Tómasson · Fjölnir Valur Orri Valsson · Keflavík Þorgrímur Kári Emilsson · ÍR Emil Barja, Haukum, David Ingi Bustion, Grindavík, Ólafur Helgi Jónsson, UMFN, gáfu ekki kost á sér í verkefnið í þetta skiptið ýmist vegna dvalar erlendis eða vegna meiðsla. Elvar Már, Martin, Ragnar og Stefán Karel eru einnig í æfingahóp A-landsliðsins. A-landsliðs æfingahópurinn: Æfingahópur A-landsliðsins er skipaður eftirfarandi 21 leikmanni: Jakob Örn Sigurðarsson · Sundsvall Dragons     Brynjar Þór Björnsson · KR Logi Gunnarsson · BC Angers 49ers     Justin Shouse · Stjarnan     Elvar Már Friðriksson · UMFN  Martin Hermannsson · KR       Hörður Axel Vilhjálmsson · MBC          Pavel Ermolinskij · Norrköping Dolphins             Finnur Atli Magnússon · KR Hlynur Bæringsson · Sundsvall Dragons Ragnar Nathanaelsson · Hamar Stefán Karel Torfason · Snæfell Helgi Már Magnússon · KR Ægir Þór Steinarsson · Sundsvall Dragons      Axel Kárason · Værlose Haukur Helgi Pálsson · La Bruixa d'Or (áður Manresa)      Jón Arnór Stefánsson CAI Zaragoza Jóhann Árni Ólafsson · Grindavík   Magnús Þór Gunnarsson · Keflavík Sveinbjörn Claessen · ÍR Darri Hilmarsson · Þór Þorlákshöfn Frá hópnum sem kallaður var saman fyrir Smáþjóðaleikana í lok maí hefur Jón Ólafur Jónsson þurft að draga sig út úr verkefninu. Darri Hilmarsson og Sveinbjörn Claessen hafa verið kallaðir inn í æfingahópinn sem kemur saman í byrjun júlí.