13 jún. 2013Þessa stundina eru U15-ára liðin okkar á leið til Kaupmannahafnar á leið á Copenhagen-Invitational mótið sem fram fer í Farum í Kaupmannahöfn. Leikar hefjast á morgun föstudag og keppni lýkur á sunnudaginn. Við munum flytja fréttir af leikjunum hér á kki.is. U15-ára liðin eru þannig skipuð: U15 stúlkna Björk Gunnarsdóttir · Njarðvík Dýrfinna Arnardóttir · Haukum Elfa Falsdóttir · Keflavík Elín Sóley Hrafnkelsdóttir · Breiðablik Emelía Ósk Gunnarsdóttir · Keflavík Inga Rún Svansdóttir · Haukum Linda Þórdís Róbertsdóttir · Tindastól Svanhvít Ósk Snorradóttir · Keflavík Sylvía Rún Hálfdánardóttir · Haukum Thelma Dís Ágústsdóttir · Keflavík Bríet Lilja Sigurðardóttir · Tindastóll Gunnhildur Bára Atladóttir · KR Þuríður Birna Björnsdóttir, Njarðvík, var valinn í liðið á sínum tíma en varð að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Þjálfari er Finnur Jónsson og aðstoðarþjálfari er Stefanía Bonnie Lúðvíksdóttir. U15 drengja Adam Eiður Ásgeirsson · Njarðvík Árni Elmar Hrafnsson · Fjölnir Arnór Hermannsson · KR Brynjar Karl Ævarsson · Breiðablik Eyjólfur Ásberg Halldórsson · KR Ingvi Jónsson · KR Ingvi Þór Guðmundsson · Grindavík Jón Arnór Sverrisson · Njarðvík Jörundur Hjartarson · FSu Sigurkarl Róbert Jóhannesson · ÍR Sveinbjörn Jóhannesson · Laugdælir Þórir Guðmundur Þorbjarnarson · KR Þjálfari er Benedikt Guðmundsson og aðstoðarþjálfari er Gunnar Sverrisson. [v+]http://www.cph-invitational.dk/ [v-]cph-invitational.dk[slod-]