31 maí 2013Rétt í þessu voru strákarnir að ljúka sínum síðasta leik á Smáþjóðáleikunum. Kýpur vann stórsigur gegn okkar drengjum 52-81. Axel Kárason fyrirliði íslenska liðsins skoraði fyrstu stig leiksins og var það í eina skiptið sem Ísland var yfir í leiknum. Fljótlega náðu Kýpurmenn undirtökunum og héldu áfram sínu striki þar til leikurinn var búinn og sanngjarn sigur þeirra því miður staðreynd. Strákarnir hafa lokið keppni á Smáþjóðaleikunum og enda í 3.sæti af fimm þjóðum sem tóku þátt í körfuboltakeppni karla á Smáþjóðaleikunum 2013 og fá þeir bronsið afhent á verðlaunafhendingu á morgun kl.16:15 að íslenskum tíma. Pétur Sigurðsson þjálfari hafði þetta að segja að leik loknum „Fyrstu mínúturnar voru ágætar og stemmdi í hörkuleik en því miður þá virtumst við verða algjörlega bensínlausir og fótalausir. Við hættum að hitta úr skotunum okkar og fórum að gera okkur lífið mun erfiðara. Þeir gengu á lagið, þeirra sjálfstraust jókst og því fór sem fór.“ Hvernig fannst þér mótið í heild sinni: „Ótrúlega skemmtilegt mót, vel að málum staðið – útkoman ásættanleg, unnum tvo og töpuðum tveimur og bronsið staðreynd. Þetta mót var góð reynsla fyrir ungu leikmennina okkar. Nú tekur við landsliðsprógram í júlí – þá er ferð til Kína, æfingaleikir heima við Dani og síðan undankeppni Evrópumótsins í ágúst þar sem við spilum við Rúmeníu og Búlgaríu.“ Strákarnir hafa lokið keppni á Smáþjóðaleikunum og enda í 3.sæti af fimm þjóðum sem tóku þátt í körfuboltakeppni karla á Smáþjóðaleikunum 2013.