29 maí 2013Strákarnir hittu mjög vel í fyrsta leikhluta en Lúxarar komu ákveðnir til leiks strax í byrjun annars leikhluta og skoruðu fyrstu 9 stigin en íslensku strákarnir skoruðu sín fyrstu stig í leikhlutanum eftir rúmlega 6 mínutna leik og í hálfleik var munurinn aðeins 1 stig. Leikurinn var jafn framan af þriðja leikhluta en slæmur kafli í fjórði leikhluta og meðal annars tæknivilla sem dæmd var íslenska liðið gerði það að verkum að strákarnir gáfust upp og Luxarnir gengu á bragðið og kláruðu leikinn frekar auðveldlega. Lokatölur leiksins 61-88. Axel Kárason fyrirliði íslenska liðsins hafði þetta að segja eftir leikinn „byrjuðum af krafti og hittum mjög vel, við náðum samt ekki að nýta okkur það nógu vel í vörninni .Við vorum vel inní leiknum í byrjun seinni hálfleik en við þreyttum okkur svo sjálfir með því að gera erfiða hluti, Luxembourg gengu bara á lagið og og því miður fjaraði leikurinn bara út ef segja má sem svo. Í byrjun fjórða leikhluta létum við ýmsa hluti fara of mikið í taugarnar á okkur og munurinn í lokinn var óþarflega mikill“ Heimamenn fengu góðan stuðning í kvöld frá áhorfendum en íbúar Luxembourg hafa verið duglegir að mæta og styðja sitt keppnisfólk í öllum greinum. Næsti leikur strákanna er á morgun fimmtudag þegar þeir mæta Andorra en leikurinn hefst kl. 18:30 að íslenskum tíma.