29 maí 2013Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza mæta Real Madrid í undanúrslitum spænsku úrvalsdeildarinnar í ár. Zaragoza lagði Valencia 77:83 á útivelli í þriðja leik liðanna en Valencia vann fyrsta leikinn örugglega, Zaragoza vann annan leikinn eftir þrjár framlengingar og tryggði sér svo sæti í undanúrslitunum með sigrinum í gær á útivelli. Jón skoraði 13 stig í leiknum á 21 mínútu sem hann var á vellinum, en samtals var hann með 32 stig í leikjunum þrem í einvíginu. Jón Arnór er fyrsti íslendingurinn sem fer í undanúrslit í bestu deild evrópu, ACB-deildinni á Spáni. Frábær árangur hjá Jóni Arnóri. Real Madrid lenti í efsta sæti í deildinni í ár og léku til úrslita í EuroLeague þar sem það hafnuði í 2. sæti eftir tap gegn Olympiacos en með liðinu leika sem dæmi spænsku landsliðsmennirnir og Evrópumeistararnir Rudy Fernández og Felipe Reyes.