28 maí 2013Íslands lagði lið San Marínó fyrr í dag í fyrsta leik sínum á Smáþjóðaleikunum sem fram fara í Lúxemborg. Lokatölur urðu 94:53, og 41 stigs sigur okkar manna staðreynd þar sem allir komust á blað. Gangur leiksins Eftir jafnan fyrsta leikhluta sem fór 20:17 hrökk íslenska vélinn í gang og leit aldrei til baka. Ísland vann svo næstu tvo leikhluta 2:8 og 32:9 og innsiglaði sigurinn. Ægir Þór sjóðandi Ægir Þór Steinarsson lék frábærlega, var með 24 stig í fyrri hálfleik og hafði hitt úr 7 af 10 skotum sínum, þar af fimm þriggja stiga skotum í sjö tilraunum. Allt liðið setti 15 þrista gegn fjórum andstæðinganna. Næsti leikur liðsins er svo á morgun gegn heimamönnum í Lúxemborg kl. 18.30 að íslenskum tíma. Stelpurnar leika gegn Möltu kl. 14.00. Stigaskor Íslands Ægir Þór 27 stig, Magnús Þór 17 stig, Jóhann Árni 8 stig, Axel 7 stig og 5 fráköst, Justin 7 stig og 5 stolnir boltar, Jón Ólafur 7 stig og 4 fráköst, Ragnar 6 stig og 12 fráköst, Martin 6 stig, Brynjar Þór 6 stig og 5 fráköst, Elvar Már 3 stig.