24 maí 2013FIBA Europe tilnefndi Sigmund Má Herbertsson til að dæma á Smáþjóðaleikunum sem settir verða á sunnudaginn í Lúxemborg. Þetta verður í fjórða sinn sem Sigmundur fer á Smáþjóðaleika til að dæma en hann dæmdi árin 2005, 2007 og 2009. Ekki var keppt í körfu 2011 í Liechtenstein. Framundan eru svo verkefni í sumar eins og á EM U20-ára landsliða hjá Sigmundi.