10 maí 2013Ísland 2 · Finnland 2 Uppskera dagsins eru tveir sigrar og tvö töp. U16 drengir unnu sinn leik en stelpurnar töpuðu í leikjum sem fram fóru í Vaslund Hallen. Síðan var komið að U18 ára liðunum, strákarnir töpuðu í hörkuleik og stelpurnar enduðu daginn á flottum sigri á stöllum sínum í finnska liðinu. Fyrirkomulagið Eftir að öll lið hafa leikið gegn hvort öðru verður farið í töfluna og það lið sem situr í efsta sæti verður krýnt norðurlandameistari í sínum flokki. Undanfarin ár hefur verið leikið um 1. sætið og 3. sætið. Nú leika öll lið fimm leiki sem telja til sigurs. Ísland · Svíþjóð Á morgun verða það heimamenn sem fá að kenna á því, við munum leika fjóra leiki gegn heimamönnum, alla í aðalsal Solna Hallen sem er besti völlurinn. 11. maí · Laugardagur · (íslenskur tími) U16 drengja · kl. 11:00 U16 stúlkna · kl. 13:00 U18 kvenna · kl. 15:00 U18 karla · kl. 17:00 KKÍ og Karfan.is munu flytja fréttir af öllum leikjum morgundagsins á báðum vefsíðum og á samfélagsmiðlum KKÍ.