9 maí 2013
U18 ára lið karla átti síðasta leik dagsins á NM gegn Noregi. Okkar strákar unnu sinn fyrsta leik í gær og Norðmenn töpuðu fyrir Svíþjóð á sama tíma. Byrjunarlið Íslands: Dagur Kár, Hugi, Maciej, Þorgeir og Eysteinn. Norðmenn byrjuðu vel, hittu vel og nýttu sinn stóra mann vel sem skagar 208 cm. yfir gólfflötinn. Íslenska liðið var talsvert í því að tapa boltanum til að byrja með en tóku sig saman. Staðan var 3:14 fyrir Noreg snemma í upphafi leiks og engin opin skot að detta niður. Pétur Rúnar kom með sterka innkomu þegar hann setti 2 þrista í röð og Jón Axel og Tómas áttu flottar rispur. Íslenska tók ítrekað tvö til þrjú sóknarfráköst í hverri sókn sem skilaði stigum á endanum. Frábær barátta og leikurinn hraður hjá báðum liðum. Ísland náði að jafna leikinn og staðan 18:18 eftir 1. leikhluta.
Í öðrum leikhluta fóru okkar menn að spila sinn bolta og hreinlega keyrðu yfir Noreg, með því að vinna leikhlutann 8:25 og þægilegt forskot staðreynd inn í hálfleikinn. Framtíðin: Jan Baginski, yngri bróðir Maciej, sá um skemmtiatriðin í hálfleik, setti tvö skot niður frá miðju við mikinn fögnuð allra í húsinu. Greinilega efnilegur eins og stóri bróðir þó ungur sé. Seinni hálfleikur: Norðmenn hafa fengið þrusuræðu í hálfleik frá þjálfara sínum því þeir komu sterkir út úr hléi og náðu 9:2 áhlaupi. Okkar menn svöruðu því með 8:0 áhlaupi til baka og litu aldrei til baka, héldu rúmlega 20 stiga forskoti og sigruðu 80:56.
Tölfræðin: Dagur Kár 22 stig og 10 stoðsendingar, Maciej Baginski 15 stig, Jón Axel Guðmundsson 13 stig, Pétur Rúnar Birgisson 9 stig og 3 fráköst, Tómas Hilmarsson 3 stig og 10 fráköst. Ísland var með 15 tapaða bolta en náði að knýja fram 27 hjá andstæðingnum. Íslenska liðið tók 26 fráköst í sókn og 24 í vörn gegn 12 sóknarfráköstum Noregs og 32 í vörn Niðurstaða: Frábær sigur eftir smá ryð í byrjun. Ekki má gleyma því að leikurinn í gær var tvíframlengdur og gæti hafa setið smávegis í mönnum. Framundan eru mikilvægir leikir gegn Finnum, Svíum og liði Danmerkur sem virðist vera einna sterkast í ár. Næsti leikur strákanna er gegn Finnlandi kl. 11.00 að íslenskum tíma á morgun. [v+]http://iof1.idrottonline.se/SvenskaBasketbollforbundet/SwedishBasketballFederation/Competitions/Scheduleresults/?game_id=2523031&season_id=80991 [v-]Tölfræði leiksins[slod-] [v+]http://karfan.is/image/1522 [v-]Myndasafn úr leiknum[slod-] [v+]http://karfan.is/image/1523 [v-]Myndasafn 2 úr leiknum[slod-]