22 apr. 2013Um helgina síðastliðnu fóru fram fyrri keppnishelgi í úrslitum yngri flokka. Leikirnir voru haldnir í umsjón Njarðvíkur og var öll umgjörð til fyrirmyndar. Frábærir leikir litu dagsins ljós og á endanum urðu það fjögur lið sem stóðu uppi sem íslandsmeistarar 2012-2013. 9. flokkur kvenna · Keflavík
10. flokkur drengja · Njarðvík
Stúlknaflokkur · Keflavík
Drengjaflokkur · Njarðvík
KKÍ óskar öllum liðunum til hamingju með titilinn. Næstu helgi fer fram seinni keppnishelgin í úrslitum yngri flokka sem verður leikin í DHL-höllinni í umsjón KR. Þar munu leika til úrslita 9. fl. drengja, 10. fl. stúlkna, 11. flokkur drengja og unglingaflokkar karla og kvenna.