20 apr. 2013Í dag eru tveir úrslitaleikir á dagskrá. Klukkan 14.00 mætast Keflavík-b og KR-b í Kennaraháskólanum í úrslitaleik B-liða deildar karla. Strax á eftir eða klukkan 16.00 er komið að Mostra og Vængjum Júpíters að leika til úrslita í 2. deild karla en leikurinn er einnig í Kennaraháskólanum.