18 apr. 2013Laugardaginn 4. maí og sunnudaginn 5. maí verður haldið hraðmót í körfuknattleik fyrir 3. og 4. bekk þ.e. börn fædd 2003 og 2004 á vegum Grindavíkur. Munu drengirnir spila á laugardeginum og stúlkurnar á sunnudeginum. Spilaðir verða 2 x 12 mín leikir og leiktími ekki stöðvaður. Við brot í skoti verður tekið eitt vítaskot sem gildir sem tvö stig. Hvert lið mun spila þrjá til fjóra leiki og mun mótið í hverjum riðli standa í u.þ.b. þrjár klukkustundir og þátttakendur fara við svo búið heim. Innifalið í mótsgjaldi er frítt í sund í Sundlaug Grindavíkur. Þátttökugjald á hver einstakling er kr. 1000 og síðasti skráningardagur er föstudaginn 26. apríl. Einungis ákveðinn fjöldi liða kemst í mótið þannig að fyrsti koma fyrstir fá. Skráning fer fram hjá Ellert Sig. Magnússon: Hs:426-7036 fs: 822-3100 elli@grindavik.is