17 apr. 2013Domino's skotunum heldur áfram að rigna og nú hafa tveir fræknir skotmenn unnið sér inn ársbirgðir af flatbökum frá Domino's. Kristinn Helgi Jónsson hitt í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport þegar Njarðvík og Snæfell áttust við í leik tvö. Á síðasta leik Stjörnunnar og Snæfells í undanúrslitunum var það Darri Gunnarsson sem hitti úr Domino's skotinu.