15 apr. 2013Valur tryggði sér í gærkvöldi sæti í Domino's deild karla með því að sigra úrslitakeppni 1. deildarinnar í ár. Valur lék gegn Hamar í úrslitunum í ár og unnu tvo fyrstu leikina í seríunni og þar með viðureignina 2-0 og fara því upp um deild. Það verða því Haukar og Valur sem taka sæti Tindastóls og Fjölnis á næstu leiktíð í efstu deild. Til hamingju Valur.